Martz Robust
Fáanlegar stærðir
201x136x40 - 231x136x40 - 264x136x40 - 296x150x40 - 346x150x40
Leyfð heildarþyngd
750
Fáanlegur fjöldi öxla
1 - 2 öxlar
Um kerruna
Martz Robust eru mjög endingargóðar kerrur með 40 cm háum og sterkum skjólborðum til heimilsnota og flutninga á nánast hverju sem er. Þær eru fánlegar með einum eða tveimur öxlum, hallanlegar eða án hallamöguleika, opnanlegar bæði að framan og að aftan sem gerir það að verkum að hægt að lengja pallinn þegar verið er að flytja langa hluti eins og timbur og álíka. Grindin er soðin, botn er úr vatnsvörðum anti slip krossviði, nefhjól og festikrókar fylgja og síðast en ekki síst er hægt að geyma hallanlegu útfærsluna upp á endann til að spara pláss, einnig eru þær eru breiðari en t.d. Martz Basic og Maxi.
Ýmsir aukahlutir eru í boði, s.s. varadekk, flöt segl yfirbreiðsla, þverbitar undir flata yfirbreiðslu, 80 - 110 cm stál upphækkun með segl yfirbreiðslu, 40cm ál eða stál upphækkunar skjólborð, 40 cm Mesh upphækkunar skjólborð, stuðningsfætur að aftan, 125 cm sliskjur, heill stál rampur, hliðarstyrkingar fyrir skjólborð, vatnsþétt ál lok, rekki að framan, mismunandi dekkjastærðir ofl.
Sjá nánar á heimasíðu MARTZ: https://martz.eu/en/trailers/general-duty/robust
Welded luggage trailer.
Framleiðandi
